Monthly Archives: mars, 2008
Stórkostleg ofnbökuð smálúða með aspassalati og hrísgrjónum
Kominn heim. Ekkert er betra! Þó að það sé gott að vera í héraði þá er alltaf gott að koma heim. Ég umgengst fjölskylduna mína mikið, þeas foreldra mína og bróður, þannig að ég brá á þann leik að bjóða þeim í mat í kvöld. Mikið var gott að sjá þau aftur. Eftir svona matarveislu [...]
Saltfiskur arabiatta með hrísgrjónum og fersku salati
Við fjölskyldan lögðum land undir fót um páskahelgina. Bara við fjögur. Það er alltaf notalegt þegar maður dregur sig svona í hlé út úr borginni og kúra sig einhversstaðar niður. Fara í gönguferðir, ef veður leyfir, bíltúra, spila og borða góðan mat. Veðrið hefur aðeins verið að leika okkur grátt eins [...]
Ljúffengur lax með hvítlauk, chilli og engifer með avókadó og tómata salati
Eins og kom fram í seinustu færslu var ég að koma frá Austurríki þar sem ég var á skíðum fyrir rúmri viku síðan. Það er ekki lítið sem maður saknar þess að renna sér niður brekkurnar. Það er eitthvað dásamlegt við að láta sig líða niður hvítar brekkur í góðu veðri. Því miður [...]
Penne með hreindýrakjöti, sveppum, tómata tapenade og rauðvíni
Komum frá Austurríki um helgina. Búinn að vera þar í viku í dásamlegu yfirlæti á Skihotel Speiereck sem er í Lungau héraði rétt hjá Salzburg. Þar eru Doddi og Þurí húsráðendur á fallegu litlu skíðahóteli sem er í litlum bæ sem heitir St. Michael sem liggur við rætur Speiereck fjalls í Ölpunum. [...]
Á fljúgandi ferð niður alpanna
Síðan verður í smá fríi næstu daga þar sem ég brá mér á skíði í Austurríki. Hef þó náð að koma mér bæði í kennslu á skíðum og í eldamennsku.
Með kveðju,
Ragnar
- Aftur á forsíðu

Nýlegar athugasemdir