Þroskasaga ungs (ennþá) læknis í eldhúsinu!

Monthly Archives: febrúar, 2009

Kraftmiklar lambakjötbollur með matarmiklu fattoush salati, couscous og auðvitað góðu rauðvíni

Eldaði þetta prýðisgóða rétt á laugardagskvöldið núna fyrir að vera tveimur vikum síðan. Hef ekki verið frumlegur síðustu daga í eldhúsinu – en það er haldbær skýring á því. Og hún er góð. Við fluttum inn í nýja húsið okkar síðastliðin föstudag. Ég hef oft áður sagt frá húsinu okkar. Það er [...]

Stórgott penne pasta með Chorizopylsu, sólþurrkuðum tómötum, rjómaosti og góðu rauðvíni

Það styttist all verulega í að við fáum húsið. Vorum í svona „Visning“ á föstudaginn, sem fólst í að sjálfstæður skoðandi fór yfir húsið. Kom með smávægilegar athugasemdir. Vonum að það verði ekkert meira en það. Verktakinn NCC sem byggði húsið hefur lent í vanda áður með hús í þessu hverfi – [...]

Ljúffengur hlynsírópsgljáður lax með steiktum kartöflum, polkabeðum með ríkotta osti og góðu salati

Mamma, pabbi og bróðir minn voru hérna yfir hátíðarnar og það var frábært að hafa þau hérna hjá okkur þó þröngt væri í koti. Mamma er búinn að vera allt síðasta haust í Toronto í Canada að sinna doktorsnámi sínu í kennslufræðum. Í farteskinu yfir hafið hafði hún með sér nokkur blöð [...]

Ljúffengar gorganzoladekkaðar grísakótilettur með steiktum eplum og ljúffengu salati

Kom heim úr héraði á föstudagskvöldið. Er búinn að vera í héraði hérna í Svíþjóð síðastliðnar tvær vikur. Þetta var áhugaverður tími – en á sama tíma hálf einmannalegur – mikið að gera í vinnunni en svo þegar að vinnunni lauk – sat maður heima í herbergi las eða glápti á sjónvarp. [...]



Ragnar Freyr

Síða þessi er þroskasaga unglæknis í eldhúsinu. Undirritaður er eiginmaður, tveggjabarna faðir og áhugamaður um veggjatennis. Er búsettur í Suður Svíþjóð ásamt fjölskyldu minni við þröskuld meginlandsins, í sérnámi í gigtlækningum. Eldhúsið er mitt herbergi og uni ég mér hvergi betur en yfir heitum pottum og pönnum. Hvergi eins gott að slaka á.

Dagatal

febrúar 2009
Þ Mi Fi L S
« jan.   mars »
 1
2345678
9101112131415
16171819202122
232425262728