Monthly Archives: apríl, 2009
Grilluð entrecotenautasteik með hestaradísusósu, haricotes vertes með parmaosti, einföldu salati og náttla rauðvínsdreitli.
Hef verið óduglegur hérna á blogginu undanfarið. Ekki það að ég hef verið að eitthvað latur. Síður en svo. Ég byrjaði um páskana að vinna í því að leggja pall og það hefur haldið mér uppteknum eiginlega allar helgar síðan. Ég kann ekkert að smíða - það má eiginlega segja að ég hafi [...]
Ljómandi lasagna – frá grunni með ekta bechamel sósu, ljúffengri kjötsósu og auðvitað gott rauðvín.
Okei. Þetta er kannski dálítið svindl…hversu oft má maður blogga um sama hlutinn. Þetta blogg átti í upphafi að vera dagbók mín í eldhúsinu og sama tíma aðhald um að ég myndi sífellt reyna að prófa eða þróa nýjar uppskriftir í eldhúsinu. Þegar maður breytir aðeins útaf vananum – prófar nýjan útgáfu [...]
Besti glaðningurinn að heiman. Íslenskt lambalæri, troðið plómum, kvíabilla, hvítlauk með rótarávöxtum og rjómasoðsósu.
Tengdafaðir minn kom á fimmtudaginn var og í föggum hans var íslenskt lambalæri. Það hefur verið sjaldséður gestur á mínum borðum síðan að við fluttum út – eðlilega. Í stað þess höfum við einstaka sinnum eldað nýsjálenskt lambakjöt – bæði hakk og læri. Sem er alveg ágætt, bragðgott og mjúkt undir tönn. [...]
Besta skúffukakan; Súkkulaðikaka í þriðja ættlið – Valdís bakar!
Mamma kenndi mér að gera þessa skúffuköku þegar ég var á aldri við Valdísi dóttur mína. Það er þannig að ég kann þessa uppskrift utanbókar – Ég hef bakað þessa köku mörg hundruð sinnum – gæti ég best trúað. Frá því að ég lærði að gera hana, þá 8 ára gamall og [...]
Magnaður hægeldaður marókóskur kjúklingur með saffran, cous cous, fallegu salati.
Vorið er komið í Lundi. Síðustu daga hefur veðrið leikið við okkur, glampandi sól, heiðskýrt, vorfuglar syngja og dagurinn í dag var frábær. Heiðskýrt og tæplega 18 stiga hiti. Tengdafaðir minn, Sigurður Eggert – kallaður Eddi kom í heimsókn á fimmtudaginn og vill eigna sér heiðurinn af veðráttunni. Við fórum í langan göngutúr [...]
- Aftur á forsíðu

Nýlegar athugasemdir