Monthly Archives: maí, 2009
Ljúffengur lax „en croute“ með blómkálsmauki og grænum aspas handa mömmunni minni
Mamma mín, hún Lilja, kom í heimsókn seinustu helgi. Þó við reynum að vera dugleg að spjalla í gegnum netið, spjalla í síma þá er ekkert eins og að hittast í persónu – þannig er það bara. Það var meiriháttar að fá mömmu í heimsókn. Við hittumst öll seinast í mars, þegar [...]
Stórkostleg grilluð nautalund með grilluðum nýjum aspas, espagnól sósu og frábæru rauðvíni
Fórum í langan hjólatúr í dag um Lund í frábæru veðri, sól á himni, þungir skýjahnoðrar sveimandi fyrir ofan okkur. Við hjóluðum á stígum meðfram víðáttubreiðum ökrum – fullir af gullnum blómum – rappsblómum, sem í haust verður skorið og fært í vinnslu og úr unnið rapsolía. Rappsolía frá Skáni þykir ljúffeng [...]
Fiskiveisla á grillinu; snögg hvítvínssoðin bláskel – ljúffengar laxamedalíur með kryddsmjöri og hvítum aspas
Það er Eurovision stemming í loftinu. Við sátum á pallinum eftir vinnu í gær og fengum okkur ölglas (glös) í sólinni. Það var dáldið skemmtilegt að hlusta á Pál Óskar fara í gegnum stiklur Evróvision- keppninnar – setti tóninn. Við sátum svo fram eftir kvöldi og ræddum málin með nágrönnunum. Nánast allir [...]
Stórgóð og stökk eldbökuð/grilluð flatbaka síðla kvölds með rauðvínssopa
Ég er oft búinn að blogga um flatbökur í mismunandi útgáfum – þunn- og þykkbotna – með mismunandi áleggjum og með mismunandi aðferðum – ofnbakað eða grillað. Hversu oft getur maður eiginlega bloggað um [...]
Frábær grillaður kjúklingur með bjórdós í endanum, innbökuðum hvítlauk og brauðhleif.
Grilltímabilið hefur hafist af fullri alvöru. Pallurinn er alveg að verða klár – smá snurfus eftir – viðbótar grindverk hér – handrið þar - smámál. Það eru líka búið að vera allt á fullu í hverfinu. Það er gaman hversu mikið líf er í hverfinu. Einn að reisa hjólaskýli, nokkrir að planta trjám, [...]
Seiðandi indverskinnblásin kjúklingakássa með hrísgrjónum, stökkum pappadums og góðu salati
Í gegnum tíðina hef ég verið ákaflega duglegur að sanka að mér matreiðslubókum. Undanfarinn áratug hef ég keypt mér nokkrar matreiðslubækur árlega. Það eru nokkrir matreiðslumeistarar sem ég hef verið að fylgjast með og ég hef lagt smá metnað í að eiga það sem þeir gefa út auk þess sem netsíður verslana [...]
- Aftur á forsíðu

Nýlegar athugasemdir