Þroskasaga ungs (ennþá) læknis í eldhúsinu!

Monthly Archives: febrúar, 2010

Afmælisblogg úr Ölpunum; Heileldaður grís með freyðandi bjór og söngskemmtun með skíðakóngum

Það er ekki hægt að kvarta – bara alls ekki. Ég fæ að njóta afmælisdagsins í Ölpunum. Þá verður lífið bara ekki betra – alltént ekki á mínum mælikvarða. Við fjölskyldan keyrðum suður til Austurríkis frá Lundi á einum og hálfum sólarhring. Gistum á arfaslöku hóteli í Hamborg – sem við bókuðum á netinu – [...]

Bestu hamborgarar allra tíma? Ótrúleg borgaraveisla í Danmörku – öllu tjaldað til!

Hamborgarar eru góður matur. Það er merkilegt hversu góð samloka, hamborgari í raun er. Þessi samblanda nautahakks, brauðs, grænmetis og hina ýmsu sósa – hvað þetta er vel heppnað. Fáar samlokur standast hamborgaranum snúning. Það bara verður að segjast. En hamborgarinn á líka sínar myrku hliðar. Þessum ágæta rétti hefur verið skipulega nauðgað af skyndibitastöðum [...]

Helgarveisla; Gómsæt ofnbökuð kalkúnabringa með sveppasósu, Kartöflum duphnoisase og hvítlaukssteiktu rósakáli

Ég hef verið latur við að blogga síðustu vikur. Óvenjulega latur. Það er ekki vegna þess að við höfum verið eitthvað löt í eldhúsinu – langt í frá. Þannig er mál með vexti að ég og bróðir minn höfum verið í átaki – hann hætti að reykja og við byrjuðum að lyfta – og þá [...]



Ragnar Freyr

Síða þessi er þroskasaga unglæknis í eldhúsinu. Undirritaður er eiginmaður, tveggjabarna faðir og áhugamaður um veggjatennis. Er búsettur í Suður Svíþjóð ásamt fjölskyldu minni við þröskuld meginlandsins, í sérnámi í gigtlækningum. Eldhúsið er mitt herbergi og uni ég mér hvergi betur en yfir heitum pottum og pönnum. Hvergi eins gott að slaka á.

Dagatal

febrúar 2010
Þ Mi Fi L S
« jan.   mars »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728