Þroskasaga ungs (ennþá) læknis í eldhúsinu!

Bestu hamborgarar allra tíma? Ótrúleg borgaraveisla í Danmörku – öllu tjaldað til!

Hamborgarar eru góður matur. Það er merkilegt hversu góð samloka, hamborgari í raun er. Þessi samblanda nautahakks, brauðs, grænmetis og hina ýmsu sósa – hvað þetta er vel heppnað. Fáar samlokur standast hamborgaranum snúning. Það bara verður að segjast. En hamborgarinn á líka sínar myrku hliðar. Þessum ágæta rétti hefur verið skipulega nauðgað af skyndibitastöðum um langt árabil. Áhangendur MacDonalds og Burger King geta hætt að lesa hér – sá sem hér bloggar hefur algera ímugust á þeim stöðum og ruslinu sem þeir pranga upp á fólk undir nafninu matur. Þessa skoðun mína mun ég ekki rökstyðja frekar – hún er öllum augljós og fjöldi annarra deilir skoðun minni. En nóg um það – snúum okkur að alvöru hamborgurum.

Fyrir rúmri viku síðan var mér boðið til vinar míns í Danmörku í algerlega meiriháttar matarboð. Það var dáldið skemmtilegt hvernig það kom til að Kristinn bauð okkur í þessa matarveislu. Á fyrstu vikum Miðjunnar, undir liðnum matur, var greint frá ákaflega skemmtilegri heimasíðu sem ostaframleiðendur í Wisconsin halda úti þar sem ástarsambandi hamborgara og osts er gert hátt undir höfði. Og þá meina ég hátt undir höfði! Á þessari síðu eru kynntar þrjátíu girnilegar uppskriftir af hamborgurum – lygilega girnilegum hamborgurum. Fyrir áhugasama má glöggva sig nánar á heimasíðu þeirra – www.cheeseandburger.com. Alltént sýndi ég Kristni og Teit þessa heimasíðu þegar þeir voru hérna í heimsókn fyrir nokkru. Kristinn virðist hafa bitið þetta í sig og eftir ýtarlega heimildavinnu bauð hann nokkrum vinum til sín í þessa frábæru hamborgaraveislu þar sem öllu var tjaldað til. Ég var heppinn að fá boð!

Eftir netkosningu höfðu fjórir hamborgarar af þeim þrjátíu af heimasíðunni orðið fyrir valinu;

The Farmer John, nr 7 - ’..not for the guy who makes spreadsheets for a living. 

The Lumberjack, nr 10 – ‘..it´s breakfast, lunch, dinner and a few snacks all rolled into one’.

The Sheboygan, nr 26 – ‘..If you´re vegan or vegetarian, please cover your ears“.

The Camelot, nr 16 – ‘..treat her right and she´ll return the favor tenfold..’

Bestu hamborgarar allra tíma? Ótrúleg borgaraveisla í Danmörku – öllu tjaldað til!

Þetta varð hið skemmtilegasta samstarfsverkefni. Kristinn og Teitur söfnuðu saman öllu hráefni – það hefur sennilega verið þriggja sólarhringavinna. Við hjálpuðumst að í eldhúsinu. Ég sá um að setja í hamborgarabrauðin og gera laukhringina. Kristinn grillaði, Teitur skar niður álegg og  tók allar ljósmyndir. Hinir drukku bjór og svo drukkum við allir bjór. Og allir voru glaðir! Mjög glaðir!

hamborgarar

Kristinn hafði keypt nóg af nautahakki – ein tvö kíló frá slátraranum; hakkað niður „live“ eftir pöntun. Þannig er hakkið best. Það var hnoðað í væna nautahakks pylsu – saltað og piprað rækilega.

hamborgarihaug

Þegar maður er með nautahakk af þessum gæðaflokki er alger óþarfi að bæta mikið af kryddum samanvið. Ekki að það sé rangt – alls ekki. Það væri hægt að krydda þá, bæta við lauk af hvaða tegund sem er, brauðmylsnu, eggi, salti og pipar, chilli – you name it. En við létum salt og pipar duga. Kjötinu var deilt niður í tólf safaríka hamborgara.

laukhringiripotti

Ég gerði einfalda uppskrift fyrir laukhringina, eftir minni, hveiti – kannski tveir bollar, teskeið salt, hálf teskeið lyftiduft og  álíka mikið af matarsóda. Um það bil flösku af góður bjór eða pilsner er hrært saman við þangað til að maður er kominn með þykkt deig.

laukhringirtilbunir

Laukurinn er skorinn niður í sneiðar, velt upp úr hveiti og síðan skellt í deigið og þaðan beint í heita olíuna og steiktir þar til fallega gullinbrúnir.

Rosti

Í uppskrift fyrsta hamborgarans – The Farmer John – kvað á um að gera rosti kartöflur. Við hökkuðum niður kartöflur, bleitum með eggi, krydduðum með salti og pipar og síðan steiktir á pönnu. Brauðinu var þrýst ofan í kartöflurnar og síðan steikt með þar til það fór að taka lit.

farmerjohn

The Farmer John - Not for the guy who makes spreadsheet for a living“

Þykkur grillaður hamborgar hlaðin öðru góðgæti. Samkvæmt uppskrift átti að nota Limburger ost – sem er kraftmikill og bragðmikil mygluostur með miklum „daun“ – ljúffengur á bragðið. Rostikartöflur á báðum brauðsneiðum, beikonsneiðar, laukhringir til skrauts.

thedouble

The Lumberjack, nr 10 – ‘..it´s breakfast, lunch, dinner and a few snacks all rolled into one’.

Hvítur og gulur cheddarostur, tveir hamborgarar, ristað hvíttbrauð, gult sinnep, hvítur laukur, tómatsósa, mayonaise. OMG – hvílíkur hamborgari – þessi fannst mér bestur!

Sheboyigan

The Sheboygan, nr 26 – ‘..If you´re vegan or vegetarian, please cover your ears“.

Á þessum hamborga var þýsk bratwurstpylsa, sauerkraut, sterkt sinnep. Uppskriftin kallaði á „cheesecurds“. Kristinn fann ekkert svoleiðis þannig að við notuðum aftur þennan ótrúlega bragðgóða gula cheddarost.

camenbert

The Camelot -, nr 16 „..treat her right and she´ll return the favor tenfold“.

Þessi var með kraftmiklum camenbertosti, steiktum sveppum, karmelliseruðum lauk, tómötum, dijon sinnepi og velpipruðu beikoni. Þarna var maður orðin svo saddur að það þurfti raunverulega að þvinga hamborgarann ofan í sig. En góður var hann!

farmerkristinn

Og auðvitað maður kvöldsins - Kristinn Grétarsson – hvílík frammistaða! Maturinn var stórkostlegur – félagsskapurinn ennþá betri. Lifi alvöru hamborgarar. Núna eru bara tuttugu og sex hamborgarar eftir!

Bon appetit!

14 Athugasemdir við Bestu hamborgarar allra tíma? Ótrúleg borgaraveisla í Danmörku – öllu tjaldað til!

  1. 16. febrúar 2010 klukkan 14:36 | Permalink

    Þetta er glæsilegt, prófa „The Farmer John“ um helgina :-)

  2. Guðný Heiðbjört's Gravatar Guðný Heiðbjört
    16. febrúar 2010 klukkan 15:29 | Permalink

    Sæll

    Matarbloggsíðan þín er einum of girnileg. Þetta matarboð með eingöngu hamborgunum í aðalhlutverki er gjörsamlega syndsamlega flottasta matarboð sem ég hef séð. Glæsilegt!!

  3. Auður Matthíasdóttir's Gravatar Auður Matthíasdóttir
    16. febrúar 2010 klukkan 20:31 | Permalink

    Glæsilegir hamborgarar. Mér hefur lengi fundist fólk ekki átta sig á gæðum ekta hamborgara. Hér er sönnun þess að þetta er flottur matur!

  4. Inga's Gravatar Inga
    18. febrúar 2010 klukkan 12:30 | Permalink

    Þú ert með ótrúlega skemmtilegt blogg og skrifar það mjög skemmtilega. Mér finns æðislegt að fylgjast með þér, haldtu því endilega áfram :)
    Kv.
    Inga

  5. Sirrý   Sunnukjör's Gravatar Sirrý Sunnukjör
    20. febrúar 2010 klukkan 11:37 | Permalink

    Mmmmmm girnilegt – þetta ætla ég að prófa, engin spurning.

  6. 22. febrúar 2010 klukkan 15:15 | Permalink

    We love your blog post and photos of the Cheese & Burger Society cheeseburgers. They are beautiful. We’ve made you the next „Member of High Standing“ on our Facebook page, http://facebook.com/cheeseandburger, and we’d like to send you a Cheese & Burger Society t-shirt. Email us back so we can make that happen! And keep up the delicious burger creations!

  7. Michelle Dagný's Gravatar Michelle Dagný
    23. febrúar 2010 klukkan 11:09 | Permalink

    Frábær hamborgaraheimasíða, lá í hláturkasti og slefandi við að hlusta á þennan frábæra gamanleikara lýsa borgurunum ………. pottþétt komin í favorites hjá mér !

  8. 24. febrúar 2010 klukkan 15:02 | Permalink

    Sæll, þetta er mjög girnilegt allt saman. Ég lendi hins vegar í miklum vandræðum með síðuna þeirra. Ég get ekki skoðað alla hamborgarana né uppskriftirnar.

  9. Bragi H's Gravatar Bragi H
    24. febrúar 2010 klukkan 17:49 | Permalink

    Sæll alveg magnað stöff maður þessi burgersíða algjör snilld og veislan hjá ykkur líka :) heyrðu bara eitt sem ég er að spá er á einhverjum stað nánari lýsing á uppskrift fyrir þessa burgera, ég sé bara upptalningu á hráefni sem fer í þá, slumpar maður kannski bara eftir myndunum hvernig þetta raðast allt saman hehe.

    Sé að ef maður fer í Chef’s Choice og nær í uppskrift þá er ýtarleg lýsing á matreiðslu og alles með þeim. Annars bara takk fyrir þetta, maður hefði kannski alrei rekið augun í þessa síðu:)

    kv
    Bragi

  10. Elínborg Kristjánsdóttir's Gravatar Elínborg Kristjánsdóttir
    25. febrúar 2010 klukkan 14:21 | Permalink

    Saell Ragnar.

    Mig langadi bara ad segja thér ad thessi faersla hefur glatt ansi marga hamborgarathyrsta íslendinga í Hollandi sídustu vikuna. Svo mikid ad fólk er farid ad plana hamborgarpartý hér og hvar um landid :)
    Hollendingar kunna nefnilega alls ekki ad búa til almennilega burgera og so far hefur adeins fundist einn stadur í Amsterdam thar sem haegt er ad fá decent burger.

    Takk fyrir skemmtilegt blogg.
    Ella

  11. Steina's Gravatar Steina
    20. apríl 2010 klukkan 14:58 | Permalink

    Sjúkleg hamborgaraveisla og hressandi síða sem ég rétt í þessu var að uppgötva. Áfram svona og ég verð daglegur gestur!!

Skrifa athugasemd

Hægt er að nota þessi HTML merki: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>



Ragnar Freyr

Síða þessi er þroskasaga unglæknis í eldhúsinu. Undirritaður er eiginmaður, tveggjabarna faðir og áhugamaður um veggjatennis. Er búsettur í Suður Svíþjóð ásamt fjölskyldu minni við þröskuld meginlandsins, í sérnámi í gigtlækningum. Eldhúsið er mitt herbergi og uni ég mér hvergi betur en yfir heitum pottum og pönnum. Hvergi eins gott að slaka á.

Dagatal

febrúar 2010
Þ Mi Fi L S
« jan.   mars »
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728