Author Archives:
Reggístemming í eldhúsinu; Jamískur „JERK“ kjúklingur með hrísgrjónum og baunum og jamískum bjór!
Ég tók mér leyfi síðastliðin föstudag, og það var gott að vera heima og lengja helgina um einn dag. Maður gerir þetta alltof sjaldan. Helgin verður einhvern vegin að alvöru fríi þegar maður lengir hana um þó ekki nema þetta – einn dag! Föstudagurinn er því einhvern vegin stolinn og þess vegna verður hann sætari [...]
Hægeldað og Dásamlegt Beouf Bourguignon að forskrift Juliu Child borið fram með hrísgrjónum, einföldu salati og rauðvíni
Síðasta mánudagskvöld horfðum við hjónin á nýjustu bíómynd leikstjórans Noru Ephron – Julie&Julia þar sem tvinnað er saman tveimur sögum. Annars vegar fyrstu ár sjónvarpskokksins Juliu Child í Frakklandi þar sem hún lærir franska matargerð og hinsvegar Julie Powell, ritara sem eldar allar uppskriftir úr matreiðslubók hinnar fyrri, Mastering the Art of French Cooking, á [...]
Heimagerð PROSCIUTTO CRUDO – loftþurrkuð hráskinka – tilraunaverkefnið í Charcuterie heldur áfram
Þetta er búin að vera einkar góður laugardagur. Má eiginlega segja að hann hafi hafist í gærkvöldi í matarboði hjá nágrannahjónum – eins þversagnakennt og það hljómar! Í morgun fengum við síðan að sofa aðeins frameftir á meðan að börnin gláptu á sænskt morgunsjónvarp. Rétt um tíu fengum við okkur svo morgunverð saman. Fórum síðan [...]
Gómsæt Galette pönnukaka með osti, skinku og steiktu eggi á erfiðum laugardagsmorgni
Það var gott að koma heim til Svíþjóðar aftur. Þetta var ansi hressilegt frí á Íslandi þessa daga – ef frí skyldi kalla. Hittum nærri alla bæði vini og fjölskyldumeðlimi og það var einstaklega ljúft að sjá alla aftur. En það er full vinna að vera að hitta fólk alla daga – mörgum sinnum á [...]
Stórkostlegur úrbeinaður og vafinn lambahryggur með sveitakartöflugratíni, gulrótum, brúnni sósu og rauðvíni
Á föstudaginn gengum við til rjúpna. Við fórum tveir saman vinirnir, Björn og ég. Lögðum af stað rétt upp úr níu í gærmorgun. Veður var með eindæmum gott í upphafi dags. Eiginlega allt of gott til rjúpnaveiða. Í svona hita heldur rjúpan sig hátt uppi. Við gengum því rakleitt upp á fjall – landið sem við [...]
Ljúfa lífið í Lækjarkoti; humarsúpa með hvítlauksbrauði og grillaðir humarhalar með hvítlaukssmjöri og hvítvíni
Þetta hafa verið góðir dagar hérna á Fróni. Við höfum verið upptekin síðustu daga – ekkert ósvipað og kom fram í seinustu færslu. Núna erum við kominn í Kjósina. Í sumarhús foreldra minna við Meðalfellsvatn. Þau keyptu þennan bústað 2001 – þá uppgerð kaffistofa frá Skógaræktarfélagi Hafnarfjarðar – af hálfbandarískri fjölskyldu sem vildi snúa á [...]
Fjölskyldan í fríi á Fróni – verður þetta stanslaus veisla?
Fjölskyldan er í stuttu fríi á Íslandi. Komum á föstudaginn var. Eins og hefur komið fram í fyrri færslum þá er þetta fyrsta heimsókn mín frá því að við fluttum út – fyrir rúmi ári – fyrir hrun. Snædís hefur skotist heim með börnin m.a. til þess að koma gámnum okkar á heimahagana í suður [...]
Heimagert birkireykt íslenskt hangikjöt – Er jólaundirbúningurinn hafin?!?
Já – jólaundir- búningurinn er hafinn á þessu heimili. Og hann hefur aldrei byrjað svona snemma. Aldrei nokkurn tíma. Þetta er náttúrulega alveg fáránlegt – það er eiginlega ekki hægt að segja annað – maður er bara eins og Kringlan – skrautið komið upp löngu áður en nokkur hræða fer að leiða hugann að því [...]
Gómsæt villt flatbaka með villisvíni og kantarellum Og ný kynslóð í eldhúsinu – grísirnir mínir gera sína eigin pizzu!
Það er mikið um að vera hjá fjölskyldunni núna næstu dagana. Núna er tæp vika þangað til að við förum í heimsókn til Íslands. Snædís hefur skotist til Íslands tvisvar með börnin síðan við fluttum til Svíþjóðar fyrir rúmlega ári síðan. Ég hef aldrei séð mér fært að skjótast á skerið – maður hefur auðvitað [...]
Charcuterie á nýjan leik; Heimagert ítalskt beikon – PANCETTA – og heimgert hunangslagað reykt beikon
Það blæs hér á Skáni. Það er farið að kólna. Og það er gott! Ég er farinn að leggja það í vana minn að byrja færslur á veðurlýsingum. Eins og sannur Íslendingur. Haustin eru frábær tími. Allir þessir fallegu litir sem umlykja okkur. Ég fór í fyrsta skipti til Stokkhólms núna fyrir helgina. Ég hélt [...]
- Aftur á forsíðu

Nýlegar athugasemdir