Jæja … Þá er maður kominn aftur heim til Svíþjóðar. Eins og kom fram í seinustu færslu þá vorum við á Íslandi í lok síðasta mánaðar og svo þegar heim var komið fórum við til Danmerkur þar sem við vorum í tæpar tvær vikur. Þar var ég að vinna smávegis aukavinnu á heilsugæslustöð og gat [...]
Eins og kom fram í seinustu færslu þá var ég grasekkill í vikutíma vegna þess að fjölskyldan mín fór viku á undan mér til Íslands. Ég lifði nokkuð góðu lífi á meðan, var oft boðið í mat og hafði það barasta alveg ágætt – þrátt fyrir söknuð og tómlegt hús. Ég hafði reyndar ekki búist [...]
Eins og stendur er ég grasekkill. Snædís og börnin mín fóru til Íslands núna á miðvikudaginn heilli viku á undan mér! Ég er með hefðbundna afsökun – ég þurfti að vinna. Mér bauðst í vor að vinna aftur í Helsingborg í íhlaupum sem nokkurskonar uppdubbaður sérfræðingur. Það var erfitt að hafna tilboðinu og í staðinn [...]
Það hefur skipt á með skini og skúrum núna seinustu vikurnar. Svíar eru orðnir ansi langeygir eftir sumrinu. Ég segi þeim í gríni að þeir séu núna að upplifa íslenskt sumar – rigning og rok. Svo kíkir maður á íslensku veðurspárnar og verður fullur öfundar. Við höfum alltént reynt að nýta og njóta sumardagana þegar [...]
Í þessari færslu ætla ég að gera tilraun til þess að blogga á tveimur tungumálum. Ég tala orðið alveg ágætis sænsku svosum en það má margt bæta þegar ég skrifa – mjög margt. En með hjálp google þýðingarvélarinnar (www.translate.google.com) og vonandi yfirlestra nágranna minna (nýrra vina) ætla ég að reyna að gera grein fyrir þessari [...]
Ég hef upp á síðkastið verið að lesa meira af uppskriftum og matreiðslubókum sem einblína á matargerð fyrir botni Miðjarðarhafsins. Þaðan kemur, að mínu mati, einn besti matur heimsins – að öðrum heimshlutum algerlega ólöstuðum! Ég rakst á þessa uppskrift á Youtube og hef verið að hugsa um að gera þennan rétt síðan. Þá var [...]
Í Svíþjóð er fátt um veitingastaði sem selja viðskiptavinum sínum djúpsteiktan kjúkling. Þeir finnast í Danmörku en ekki hér. Af hverju veit ég ekki! Kannski hefur það að gera með að Svíum þykir of vænt um heilsu sína til að leggja sér slíkt til munns. En það er stundum þannig að á sunnudögum og bara [...]
Nýlegar athugasemdir